Sunday, November 28, 2010


Þögli þjónninn er sígildur gamanleikur eftir Nóbelsverðlaunahafann Harold Pinter.
Í loftlausu kjallaraherbergi bíða tveir leigumorðingjar eftir næstu skipun. Þeir hafa unnið saman í fjölda ára, en í dag er eitthvað ekki eins og það á að vera. Undarlegar skipanir berast með matarlyftunni – að ofan.
Atli Þór Albertsson og Guðmundur Ólafsson fara á kostum sem þeir Ben og Gus í þessum listilega skrifaða sígilda gamanleik.
Þýðing: Gunnar Þorsteinsson
Leikstjóri: Jón Gunnar Þórðarson
Leikmynd: Bjarki Árnason, Dýri B. Hreiðarsson og leikhópurinn
Búningar: Leikhópurinn
Leikarar: Atli Þór Albertsson, Guðmundur Ólafsson


...
"Harold Pinter er eitt af merkustu leikskáldum Breta á síðustu öld. Hann náði að slá einstæðan persónulegan tón í samtalslist sinni og endurnýjaði um leið enskan leiksviðsprósa. Blómaskeið hans var á sjöunda og áttunda áratugnum. Langbesta verk hans er Húsvörðurinn sem er eitt af meistaraverkum tuttugustualdarleikhússins. Á síðari árum Pinters skrifaði hann æ minna fyrir sviðið en lét mikið að sér kveða sem pólitískur aktívisti. Þegar hann fékk Nóbelinn árið 2005 hafði hann löngu sungið sitt síðasta sem leikskáld. Hann var þá orðinn reiður gamall maður sem fór honum ágætlega. Hatrömm barátta hans gegn Íraksstríðinu var glæstur lokaþáttur á ferlinum. Við hefðum þurft að eiga einhvern slíkan hér heima, en það áttum við ekki."

Harold Pinter
___________
- LIM 203

No comments:

Post a Comment